FLUTNINGUR

Flutningur forsteyptu eininganna fer fram á dráttarbílum og er þessi verkþáttur oftast á höndum okkar hjá Loftorku. Við erum með útbúnað til þessara flutninga en hver sem er getur fengið einingar afhentar við verksmiðjudyr óski hann þess.

 

Loftorka hefur hannað sérstakan búnað til að einingarnar komist óskemmdar á áfangastað.

Skemmdir í flutningum eru því sjaldgæfar en ef þær verða sér Loftorka ávallt um viðgerðir. Flutningsaðferðin miðast við að eftirviðgerðir séu í lágmarki.

 

FLUTNINGUR VEGGEININGA

Veggeiningar eru lestaðar á sérhönnuð fleti frá verksmiðju. Fletin eru flutt á einingavögnum sem dráttarbílar fara með á afhendingarstað.

 

FLUTNINGUR LOFTAPLATNA

Holplötur, kúluplötur og filegran loftaplötur eru fluttar á flatvögnum.