FRÁRENNSLISLAGNIR
Loftorka hefur áratuga reynslu í framleiðslu á frárennslisrörum og brunnum úr steinsteypu.
Til að geta boðið viðskiptavinum sínum sem flesta möguleika hefur Loftorka valið til samstarfs danska fyrirtækið Uponor sem framleiðir hágæða plaströr og fylgihluti. Plaströrin passa vel við steinrör Loftorku og er því fjölbreytnin í frárennslislögnum og samtengingum þeirra við steinrör mjög mikil.
Styrkur er ótvíræður kostur við steinrör og krefjast þau ekki tímafreks frágangs á jarðveg umhverfis rörin, en plaströrin eru léttari og meðfærilegri. Því getur reynst erfitt að velja hvort skal nota í frárennslislagnir hverju sinni.
|