BRUNNAR

Loftorka framleiðir hinar ýmsu tegundir brunna fyrir frárennslislagnir, stofnlagnir o.fl.
Tegundir brunna eru með ýmsum hætti. Annarsvegar heilsteyptir brunnar og brunnbotnar og hinsvegar sérframleiddir brunnar úr einingum sem steyptar eru saman eftir á.

 

 

 

BOTNBRUNNAR

Botnbrunnar eru sérsteyptir eftir því havaða rör tengjast þeim og hvernig. Hefðbundnir botnbrunnar eru fyrir lagnir

ø100 – ø600 mm.
Í botni brunnana er mynduð rás með sömu lögun og lögnin sem tengist brunninum.

 

DÆLUBRUNNAR

Hægt er að fá dælubrunna í öllum stærðum og gerðum. Steinrör frá Loftorku henta vel til að gera stóra dælubrunna. Rörin eru reist upp á endann og botn steyptur í rörið.

 

TENGIBRUNNAR

Tengibrunnar eru botnbrunnar fyrir lagnir ø700mm og stærri. Þessir brunnar eru gerðir úr einingum sem eru steypar saman til að breyta stefnu lagnarinnar. Steypt er lagnarás í botninn eins og er í hefbundna botnbrunna. Gengið er frá lokinu á þessum brunnum með þeim hætti að hægt er að nota hefbundna brunnhringi til að hækka brunnana upp í rétta hæð.

 

LAGNABRUNNAR

Hitaveitu- og neysluvatnsbrunnar eru fyrir geislamælingatæki, þrýstijafnara og önnur stjórntæki fyrir veitur. Brunnarnir eru sérsmíðaðir úr forsteyptum einingum sem steyptar eru saman til að forma þá.