GÆÐAEFTIRLIT RÖRAFRAMLEIÐSLU

Loftorka Borgarnesi ehf. hefur ávallt kappkostað að vera með virkt gæðaeftirlit á framleiðsluvörum sínum. Lögð er mikil áhersla á innra eftirlit með daglegri framleiðslu þar sem varan er stimpluð og dagsett. Jafnframt eru endarnir á ákveðnum fjölda röra mældir og athugað hvort þeir séu innan leyfðra frávika. Nú er í gildi rammasamningur við Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem annast ytra eftirlit með framleiðslu röranna. Það er framkvæmt með hliðsjón af DS-400 staðli, þar sem megináherslan er lögð á eftirtalin atriði:

 

 

 

BROTÞOLSPRÓF

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur framkvæmt brotþolspróf á rörunum. 
Niðurstöður þessara prófana hafa verið ótvírætt jákvæðar þar sem rörin hafa verið með allt að helmingi meira brotþol en krafist er í staðlinum DS-400. Ástæður þess má rekja til tveggja þátta: Annars vegar er veggþykkt röranna mun meiri en áður hefur þekkst og hins vegar hefur náðst verulegur árangur með samsetningu efnisins.

 

LEKA- OG ÞRÝSTIPRÓF

Loftorka Borgarnesi ehf. notar þrýstiprófunartæki til lekaprófunar. 
Tækið er bylting fyrir gæðaeftirlitsþáttinn, þar sem hægt er að prófa bæði rör og brunna. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur tekið tækið út og eru niðurstöðurnar mjög góðar. Þau rör sem prófuð voru stóðust tífaldan þann þrýsting sem til þeirra er ætlast samkvæmt staðlinum DS-400 eða 0,3 kg/cm2.

 

 

NÁKVÆMNI

Um 10% þeirra rörahluta sem framleiddir hafa verið eru mældir með þar til gerðum mælitækjum. Rörin eru mæld á tvennskonar hátt. Annars vegar er mæld nýtingalengd þeirra og hinsvegar eru mæld frávik á samsetningarendum.
Niðurstöður eru á þann veg að frávik á samsetningarendum frá uppgefnum málum á teikningu eru 0,1-0,6 mm. Frávik á notlengdinni hafa verið frá 0,1-0,8 cm.

 

HRÁEFNI OG VINNSLUAÐFERÐ

Rörin eru framleidd úr besta hráefni og er steypustyrkur að jafnaði yfir 50MPa. Rör stærri en 1500mm eru enn fremur styrkt með járnspíral að lágmarki K10 - c/c150mm. Rörin eru hert í 12 tíma við allt að 100% raka. Framleiðsla röranna fer fram í fullkomnasta vélbúnaði sem völ er á.