STEINRÖR
Hingað til hafa þau rör sem framleidd hafa verið hérlendis verið samsett með gúmmíhringjum eða hampi. Lekahætta hefur verið umtalsverð og ekki hefur verið boðið upp á neinn möguleika að leggja steinlagnir sem þola einhvern þrýsting í lögninni.
Hinar nýju vélar sem Loftorka Borgarnesi ehf. hefur fest kaup á hafa mjög sveigjanlega framleiðslulínu. Hægt er að framleiða þar rör frá 100 mm til 2500 mm í þvermál og allt að 2500 mm að lengd. Nýju rörin eru jafnframt með innsteyptum gúmmíhringjum; IG-Glipp, sem er það nýjasta á markaðnum í dag.
Þessi aðferð kemur frá norður Evrópu þar sem mikil umræða er um öll þau spilliefni sem síast út í jarðveginn í óþéttum lögnum. Þessir gúmmíhringir voru því aðferð evrópskra verkfræðinga til að finna framtíðarlausn á því vandamáli að ná jarðvegslögnum þéttum. Má segja að þessir hringir séu ein mesta framþróun sem hefur komið í þéttingu steinröra frá upphafi.
|