16. október 2011

Hafist handa við reisingu á iðnaðarhúsi á Grundartanga

Fyrir helgi hófst reising á húsi fyrir Vélsmiðjuna Hamar, að Klafastaðavegi, á Grundartanga.  Fyrstu 4 súlurnar af 21 voru risnar á föstudaginn.

 

Það er reisingaflokkur Loftorku sem sér um að reisa húsið, en óhætt er að fullyrða að hvergi á Íslandi sé jafnmikil þekking á þeim verkþætti samankomin og í þeim hópi.

 

Húsið verður rétt um 1500 fermetrar, úr viðhaldsfríum samlokueiningum með marmaraáferð.  Áætlað er að það verði tekið í notkun næsta vor.