Þingflokkur sjálfstæðismanna heimsótti Loftorku Borgarnesi síðastliðin fimmtudag.
Hafði Þingflokkurinn verið á árlegum haustfundi sínum, sem að þessu sinni var haldinn að Reykholti í Borgarfirði.
Þingmenn skoðuðu fyrirtækið og starfsemi þess undir góðri leiðsögn Óla Jóns Gunnarssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Mátti heyra á mönnum að það kæmi á óvart hversu mikil og fjölbreytt starfsemi fyrirtækisins væri og starfsmannafjöldi mikill.
Mikilvægt væri fyrir byggðarlög úti á landi að hafa slíkt fyrirtæki í atvinnuuppbyggingu héraðsins sem Loftorka væri.
Að lokinni heimsókn þakkaði Óli Jón þingmönnum fyrir að veita fyrirtækinu athygli með heimsókn sinni, því það hvetti menn til enn frekari dáða og baráttuvilja, sem væri mikilvægt, ekki síst á þeim umbrotatímum sem nú riðu yfir byggingariðnaðinn á landinu.