Þjóðvegi 1 hefur verið breytt þannig að hringvegurinn fylgir eftir breytinguna á veginum norður á Strandir frá Brú og norður fyrir Selá við Fögrubrekku. Þaðan færist vegurinn síðan yfir fjarðarbotninn og liggur austan við húsin á Fjarðarhorni. Vegurinn norðan af Ströndum verður síðan tengdur inn á hringveginn á nýjum stað fyrir miðjum botni Hrútafjarðar og lengist því leiðin fyrir Hrútfirðinga suður yfir Holtavörðuheiði lítið eitt.
Við þesasr vegabreytingar fer núverandi Staðarskáli úr alfaraleið og Brúarskáli verður aflagður. Því ákváðu eigendur að byggja nýjan og stærri söluskála Strandamegin við Hrútafjarðará, á túni skammt vestan við ný gatnamóta við veginn norður á Strandir.
N1 gerði samning við Loftorku Borgarnesi ehf. um framleiðslu og reisingu á forsteyptum sökkul-, vegg- og loftaeiningum í nýjan Staðarskála sem stendur við nýju vegtenginguna um Hrútafjarðarbotn.
Loftorka hefur framleitt um 1260 m² af sökkul- og veggeiningum í nýja húsið og um 800m² af loftaplötum. Reisingarflokkar Loftorku sáu svo um að reisa einingarnar og ganga frá samsteypu þeirra.
Þá sá hönnunar- og tæknideild Loftorku um burðarþols- og einingahönnun fyrir húsið.
ASK arkitektar sáu um hönnun hússins.
Sagan:
Bræðurnir Eiríkur og Magnús Gíslasynir, ásamt Báru Guðmundsdóttur frá Ófeigsfirði, eiginkonu Magnúsar, stofnuðu Staðarskála árið 1960. Börn Magnúsar og Báru hafa tekið þátt í rekstri Staðarskála.
Staðarskáli í Hrútafirði á sér um 50 ára sögu í ferðamálum á Íslandi og hefur um áraraðir gengt mikilvægu þjónustuhlutverki á þjóðleiðinni milli Norður- og Suðurlands. Starfsemi fyrirtækisins hefur haft mikil áhrif á ferðamál í Húnaþingi og víðar. Staðarskáli er einn af stærri vinnuveitendum í Húnaþingi vestra, reksturinn skapar um 30 ársstörf.
Fjölskyldan á Stað í Hrútafirði hefur selt allt hlutafé sitt í Staðarskála ehf. til N1, sem mun reka þjónustuskálann áfram undir í óbreyttri mynd undir merkjum Staðarskála og N1.
Fréttablaðið, 23. sep. 2008 03:45
Draugarnir verða skildir eftir
„Ég á ekki von á að það verði neinar meiri háttar breytingar á matseðlinum. Það hefur gefist vel að bjóða upp á þrjár tegundir af heimilismat. Kúnnunum líkar það vel," segir Sveinn Friðfinnsson, kokkur í Staðarskála. Á fimmtudaginn hefst nýr kafli í vegamenningu Íslands þegar nýr Staðarskáli verður opnaður vestanmegin í Hrútafirði. Gamla Staðarskála - sem kallaður hefur verið „miðja Íslands" - verður lokað kvöldinu áður og má búast við tregafullri kveðjustund. Veitingasala hófst í Staðarskála árið 1960, en í 31 ár á undan hafði verið þar olíusala. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað verður um gamla húsnæðið.