Um 50 byggingatæknifræðinemar komu í heimsókn til Loftorku á föstudaginn 26. sept. sl.
Var þetta liður í árlegri haustferð nema, þar sem blandað er saman gamni og fræðslu.
Konráð Andrésson stjórnarformaður tók á móti hópnum við aðalskrifstofu fyrirtækisins í Borgarnesi og bauð nemendur velkomna. Fór hann yfir sögu fyrirtækisins og var nemendum síðan skipt upp í hópa sem fóru í gegnum verksmiðju fyrirtækisins með leiðsögumönnum sem skýrðu fyrir þeim framleiðsluaðferðir og sýndu framleiðslu fyrirtækisins.
Nemendur sýndu fyrirtækinu og framleiðsluvörum þess mikinn áhuga og spurðu margs, varðandi framleiðslu steinröra-, veggeininga- og loftaeiningaframleiðslu fyrirtækisins.
Sérstaka athygli veittu nemendur kúluplötuframleiðslu Loftorku, sem segja má að sé ein áhugaverðasta nýbreytni í forsteyptum einingum, en Loftorka hefur einkaframleiðslurétt á kúluplötum á Íslandi.
Að lokinni skoðunarferð um fyrirtækið þáðu nemendur veitingar í boði Loftorku.