11. desember 2008

Krikaskóli Mosfellsbæ

KRIKASKÓLI

 

JÁVERK ehf. vinnur að uppbyggingu Krikaskóla í Mosfellsbæ.  Skólinn stendur við Sunnukrika og er ætlaður börnum á aldrinum eins til níu ára.  Áætlað er að um 200 börn verði í skólanum. 
Verkefni JÁVERK nær til jarðvinnu, uppsteypu og ytri frágangs hússins, ásamt því að samræma vinnu undirverktaka við alla verkþætti sem þarf til að fullgera hús og lóð.

 

Í Krikaskóla eru notaðir um 2.300m² KP340mm. Kúluplötur frá Loftorku Borgarnesi.

Að auki framleiðir Loftorka um 1.000m² af Samlokuveggjum í skólann, veggirnir verða með sjónsteypuáferð að utan, fullfrágengnir með einangrun og burðarvegg að innanverðu.

Þá sér Loftorka um einingahönnun fyrir útveggjaeiningarnar í skólann.

 

 

1. verðlaun í samkeppni um hönnun Krikaskóla í Mosfellsbæ hlaut Steffan Iwersen arkitekt f.a.í / m.a.a hjá Einrúm arkitektum.

Verkið var unnið í samstarfi við Andra Snæ Magnason, Arkiteó, Suðaustanátta, Helga Grímsson, Sigrúnu Sigurðardóttur og VSB.

Krikaskóli er ætlaður börnum frá aldrinum eins til níu ára og er því fyrsti skólinn sinnar tegundar á Íslandi. 

 

Krikaskóli fléttast við landslagið, byggingin vex upp úr landinu og myndar skjólgóða laut um leiksvæði barnanna. skólinn er landslag, landslag til að upplifa, læra, leika og skapa. landslag sem gefur margfalda möguleika á upplifun.

 

Þegar komið er að skólanum frá Sunnukrika sést inn í tónlistar- og hreyfirými skólans. Börnin sem athafna sig inn í rýminu og börnin sem sitja í glugganum fanga athygli vegfarenda. Gleðin skín af skólanum...... kraftur skólans er sýnilegur.

 

Aðalinngangurinn er inn undir húsinu, í skjóli frá vindum og veðri, hvorki úti né inni. Lýsing í loftinu innundir húsinu vísar leiðina inn í skólann. Opin hjólageymsla og flokkunarmiðstöð hverfisins er til móts við innganginn, innundir húsinu. Lóðréttir rimlar afmarka svæðið að hluta.

Uppi er næði, hlý birtan seytlar gegnum trérimlana, veröldin er úti en öryggi og ró inni. Næði til að hugsa, reikna, lesa, læra. Hver aldurshópur á sinn stað, sitt hreiður.

 

Salurinn, risastór fyrir krakka og rúmgóður fyrir kennara, afmarkaður með hæðarmun í gólfi, sæti, skábraut við leiksvið og þrep við gangveg. Hádegismatur, leikrit, diskó eða kór. stiginn og háu þrepin, bekkir fyrir áhorfendur á hátíðlegum stundum. Hlý birtan takmörkuð af rimlunum og yfirbyggðu útisvæði kemur í veg fyrir steikarpott í suðursól, brýtur upp ljósið og mýkir. 

 

Sjá heimasíðu Einrúm: einrum.com

 

 

  

JÁVERK ehf. er byggingaverktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1992 og starfar á útboðsmarkaði og í eigin verkum.  Fyrirtækið hefur á að skipa öflugum starfsmönnum, stjórnendum og tækjabúnaði og getur því tekist á við verkefni af hvaða stærðargráðu sem er. 
Skrifstofur eru bæði á Selfossi og í Reykjavík.

 

Sjá heimasíðu Jáverk: javerk.is