Hinn 10. ágúst, 2009 var skrifað undir samning á milli LOB ehf í Borgarnesi og skiptastjóra að þrotabúi Loftorku Borgarnesi um kaup á rekstri, tækjum, búnaði og birgðum félagsins.
LOB ehf. er nýstofnað félag m.a. af nokkrum fyrrum starfsmönnum Loftorku ásamt upphaflega stofnandanum, sem selt hafði hlut sinn í félaginu fyrir nokkrum árum, og syni hans.
Hjá LOB ehf. munu viðskiptavinir fá sömu þjónustu og framleisluvörur og áður voru í boði hjá Loftorku Borgarnesi.
Það er von þeirra sem að þessu standa að þetta verði heillaspor fyrir byggðarlagið auk þess að skapa allmörg störf fyrir það fólk sem áður starfaði hjá Loftorku Borgarnesi.
Nú þegar hafa 45 starfsmenn byrjað störf hjá nýja félaginu.