20. september 2009
Loftorka framleiðir svalir og svalaganga á fjölbýlishús í Þórshöfn í Færeyjum.
LOB ehf (Loftorka Borgarnesi) hefur náð samningi við verktakafyrirtækið Articon í Færeyjum um sölu á einingum sem framleiddar verða í Borgarnesi og fluttar sjóleiðina til Færeyja.
Um er að ræða svalir og svalaganga á 8 fjölbýlishús í Þórshöfn, í heildina um 900 tonn af einingum. Óli Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri segir mjög ánægjulegt að fá þessa viðbót við önnur verkefni sem fálagið vinnur að um þessar mundir. "Það er þröngt um verkefni næstu mánuðina og það munar sannarlega um verkefni sem þetta" segir Óli Jón.
“Húsin eru fullbyggð í Þórshöfn en fram komu gallar á þeim sem orsaka það að allar svalir og svalagangar verða sagaðar af húsunum og nýjar einingar settar í staðin” segir Óli Jón.
Á myndunum eru annars vegar hluti þeirra húsa sem um ræðir og hins vegar mynd frá undirritun samninga þar sem Bergþór Ólason, fjármálastjóri LOB ehf (Loftorku) og Jón Danielsen framkvæmdastjóri Articon undirrita samninga.
|
 |
|