25. febrúar 2010
Loftorka í Borgarnesi ehf
Frá og með deginum í dag verður hið gamla og rótgróna Loftorku nafn tekið aftur upp í Borgarnesi. LOB ehf sem verið hefur formlegt heiti félagsins síðan í sumar, verður nú lagt til hliðar og upp tekið nafnið Loftorka í Borgarnesi ehf.
,,Þetta er mjög ánægjulegt fyrir okkur sem komum að hinu endurreista félagi. Loftorku nafnið er þekkt og nýtur virðingar í byggingageiranum. Hér hafa menn verið með rörasteypu síðan 1969 og framleitt húseiningar síðan 1981 og alltaf undir nafni Loftorku." segir Óli Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri.
|
 |
|