Gæðavottun steinsteypu
Loftorka í Borgarnesi varð í febrúar 2011 fyrst íslenskra steypuframleiðenda til að fá útgefið samræmisvottorð frá NMÍ (Nýsköpunarmiðstöð Íslands). Samræmisvottorðið var gefið út í kjölfar þess að fylliefnaframleiðsla félagsins var EC-vottuð í júní 2010 og í kjölfarið var framleiðsluhandbók fyrir steinsteypu yfirfarin og útgefin. Loftorka er stolt af því að vera í fararbroddi íslenskra steypuframleiðenda hvað gæðamál varðar.