|
STAÐSTEYPT HÚS - FORSTEYPT HÚS, HVER ER MUNURINN?Á Íslandi er rík hefð fyrir að staðsteypa hús og hefur þessi aðferð verið helsta byggingaraðferðin í gegnum tíðina og hefur þá oftar en ekki verið einangrað að innanverðu við burðarvegg.
STEYPUSKEMMDIRSteypuskemmdir undanfarinna ára og sá gríðarlegi kostnaður sem hefur fylgt í kjölfarið hefur loksins leitt menn inn á aðrar brautir. Smátt og smátt er verið að tileinka sér þá vinnureglu að einangra hús utan við burðarvegg, enda er það rétt samkvæmt viðurkenndum fræðunum í byggingariðnaði.
STEINSTEYPA SEM VEÐURKÁPATil eru aðilar sem telja að steinsteypu eigi ekki að nota sem ystu klæðningu í útveggjum og benda þá á reynslu liðinna ára. Við hjá Loftorku bendum hins vegar á að steinsteypan hentar vel í útveggi sé hún framleidd undir ströngu eftirliti og notuð rétt.
STEINSTEYPA - GÓÐUR KOSTUR
Ýmsar tegundir klæðninga hafa rutt sér til rúms á síðustu árum fyrir útveggi. Forsteyptar samlokueiningar eru raunhæfur kostur þegar ákveða skal hvaða útveggjagerð á að nota.

|
 |
 |
|

|
|
UNNIÐ VIÐ BESTU SKILYRÐIEf hægt er að staðsteypa húshluta á byggingarstað við erfið skilyrði, er oftast hægt að framleiða þann sama húshluta við bestu skilyrði í verksmiðju.
SVEIGANLEIKI Í FRAMLEIÐSLU MIKILLOft er því haldið fram, þegar rætt er um forsteyptar einingar, að þar sé um einfalda fjöldaframleiðslu að ræða sem henti ekki í tilteknar byggingar. Svo er alls ekki. Forsteyptar einingar eru framleiddar eftir máli hverju sinni og sveigjanleikinn er mjög mikill.
BERIÐ SAMAN KOSTINAVið hjá Loftorku Borgarnesi ehf. skorum á ykkur að skoða kostina, þeir eru fleiri en þið hafið ímyndað ykkur.
TÍMINN ER PENINGARTíminn er peningar. þegar hratt þarf að byggja eru forsteyptir byggingahlutar mjög góður kostur. Hægt er að forsteypa húsið á meðan unnið er við grunn og þegar sökklar hafa verið steyptir geta einingarnar verið tilbúnar til reisingar. Reisingin tekur örfáa daga og þá getur þakvinnan hafist. Veggirnir sem þá eru komnir eru tilbúnir til
sandspörslunar (undir málningu). |
|