BOTNPLÖTUR
Loftorka staðsteypir botnplötur fyrir viðskiptavini sína. Plöturnar eru steyptar þegar búið er að reisa sökkuleiningar og leggja jarðlagnir og fylla inní grunn með þjöppuðu undirlagi.
Útveggja- og innveggjaeiningar eru reistar ofan á sökkuleiningar áður en botnplata er steypt, en reisingarflokkar Loftorku ganga frá einangrun undir botnplötu og vinna járnabindingar í plötuna og sjá um staðsteypu hennar. Oftast eru botnplötur með 12 cm steypuþykkt með 75mm plasteinangrun 24kg/m³ undir plötunni, og bendineti 1x K257. Plöturnar eru afhentar grófpússaðar og tilbúnar undir flotun, en flestir leggja gólfhita yfir tilbúna gólfplötu. Það er útfært þannig að ofan á plötuna er lögð 2-3 cm einangrun, þar ofaná eru gólfhitalagnir lagðar og síðan er flotað yfir með 5-7 cm flotsteypu.
|