YTRA EFTIRLIT

Loftorka er í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands um ytra eftirlit með framleiðslunni.

 

Útfærsla eftirlits

Nýsköpunarmiðstöð Íslands sendir fulltrúa til að fylgjast með að framleiðslueftirlitið sé virkt. Tekin eru sýnishorn bæði af einangrun og steypustyrktarstáli og þau send Nýsköpunarmiðstöð Íslands til þolprófana.

 

Gæði framleiðslunnar

Þetta öfluga eftirlit tryggir gæði framleiðslunnar og er þannig ákveðin trygging fyrir viðskiptavini Loftorku um að varan sé eins og til er ætlast. Aðeins viðurkenndir hönnuðir sjá um hönnun eininganna sem tryggir að byggingatæknileg atriði eru í lagi og að ákvæði byggingareglugerðar eru uppfyllt.

 

Vottun forsteyptra eininga

Vottun fer þannig fram að hönnuður eða starfsmenn Loftorku senda teikningar af væntanlegri framleiðslu til umsagnar. Eftir yfirferð teikninga eru gerðar athugasemdir, ef einhverjar eru. Annars er gefið framleiðsluleyfi fyrir einingarnar.  Þetta öfluga eftirlit á að tryggja gæðin og er þá framleiðsla steinsteyptra eininga frá Loftorku vottuð og viðurkennd sem fullgildir byggingahlutar.

 

 

 

 

 

 

FRAMLEIÐSLUEFTIRLIT

Innra framleiðslueftirlit hefur alltaf verið virkt við framleiðslu forsteyptra eininga hjá Loftorku. Með því að viðhafa virkt eftirlit með framleiðslunni og skrá hverja einingu fyrir sig, er alltaf hægt að rekja alla þætti framleiðslunnar. Komi eitthvað upp á er hægt að sjá úr hvaða sendingum bæði einangrun og steypustyrktarstál er. Einnig er hægt að rekja nákvæmlega úr hvaða hræru steypan kom.

 

Eftirlitskerfi Loftorku felst einkum í fjórum þáttum:

 

Eftirlit og skráning hönnunargagna

Þegar teikningar berast eru þær yfirfarnar,  verkheiti og hönnuður skráður og einnig er gerð framleiðsluáætlun eininga í verksmiðju.

 

Eftirlit og skráning við móttöku efnis

Við komu efnis til framleiðslunnar er það skráð og gengið úr skugga um að tilskilin gæðavottorð fylgi.

 

Eftirlitsmælingar við framleiðsluna

Áður en steypt er í mótin fer fram úttekt á þeim.  Mótin eru mæld upp og málin borin saman við teikningu. Staðsetning glugga og dyragata er einnig athuguð, svo og göt, úrtök, raflagnir og innsteyptir hlutir. 
Járnabinding er yfirfarin og borin saman við teikningu. Þegar einangrun og járnagrind í veðurkápu hefur verið sett niður fer fram önnur. Ennfremur eru gerðar mælingar á einingum eftir að þær eru teknar úr mótunum. Endanleg úttekt í verksmiðju er gerð eftir að lokið er við að glerja og setja laus fög í glugga

 

Eftirlit við steypuframleiðslu

Loftorka er með eigin steypustöð í verksmiðju.  Sýni eru tekin reglulega og loftinnihald mælt.  Einnig er tekið sigmál,  sívalningar steyptir og brotþol prófað reglulega.