FORSTEYPTAR LOFTAPLÖTUR

Hjá Loftorku Borgarnesi ehf. eru framleiddar ýmsar gerðir af forsteyptum loftaplötum í mannvirki af öllum stærðum og gerðum.  Framleiddar eru forspenntar holplötur, kúluplötur og filegran loftaplötur.  Plötur eru sérframleiddar í mörgum stærðum og gerðum allt eftir því sem við á hverju sinni.
 
Forsteyptar plötur eru gjarnan notaðar sem milligólf í byggingum.  Það fer eftir byggingum hvaða plötur henta best hverju sinni.  Holplötur og kúluplötur eru gjarnan notaðar þegar álag er mikið og henta vel í til dæmis iðnaðarhúsnæði, bílakjallara og í allar stærri byggingar.   Filegran loftaplötur henta vel í flestar gerðir bygginga og eru gjarnan notaðar sem milligólf í íbúðarhúsum. Holplötur er einnig notaðar í veggi.
 
Allar plöturnar eru framleiddar samkvæmt teikningum og eftir óskum kaupanda.  Sjaldgæft er að tvær einingar séu nákvæmlega eins.   Plötur eru steyptar í verksmiðjum Loftorku í Borgarnesi við bestu aðstæður, sem tryggir gæði steypunnar.

 

Kostir forsteyptra platna er meðal annars styttri uppsetningartími á byggingarstað, en plöturnar eru hífðar á sinn stað og ekki eru um hefðbundinn undirslátt að ræða.  Filegran loftaplötur koma með rafmagnsdósum innsteyptum eftir teikningum frá rafmagnshönnuði.  Lögnum og rafmagnsdósum er hægt að koma fyrir í kúluplötum með svipuðum hætti.
 
Með því að forspenna steypuna með strekktum vírum í verksmiðjunni er hægt að auka burðarþol.  Holplötur eru forspenntar en filegran loftaplötur eru ýmist forspenntar eða slakbentar allt eftir því sem við á.
 
Eftir að framleiðslu lýkur eru plötur fluttar á byggingarstað á flutningavögnum.  Þegar komið er með plöturnar á byggingarstað eru þær hífðar beint á sinn stað í byggingunni eða þær geymdar á byggingarstað allt eftir óskum viðskiptavina.