INNVEGGIR

Framleiðsla innveggja skiptist í berandi og ekki-berandi  innveggi. Burðarveggir eru þá oftast um 15 cm þykkir, aðrir allt niður í 7 cm þykkir og allt þar á milli.

 

Samsetningar eru með sama hætti og í útveggjum nema hvað innveggirnir eru oft rafsoðnir við aðra veggi.

Raflagnir og aðrir innsteyptir hlutir eru eftir óskum hverju sinni.

 

Veggirnir eru með stálmótaáferð annars vegar og pússaðir hins vegar og eru því tilbúnir til sandspörtlunar þegar samsteypt hefur verið.