|
FORSTEYPTAR SVALIR
Framleiðsla forsteyptra svala er orðin snar þáttur í einingaframleiðslu Loftorku.
Svalirnar eru reistar á sérstakt burðarkerfi utan á húsin en hafa ekki tengingu inn í gólf bygginganna. Þetta leysir tvö stór vandamál varðandi leka og kuldabrýr. Allar festingar við burðarvirkið geta verið innsteyptar og frágengnar. Einingarnar eru því tilbúnar til uppsetningar.
Nær óendanlegir möguleikar eru í útfærslum svalanna og er það nær eingöngu þyngdin, hámark 10 tonn, sem takmarkar notkunarmöguleikana.
|