|
SÖKKLAR
Notkun forsteyptra sökkla hefur stóraukist í seinni tíð. Algengast er að sökkulveggurinn sé reistur á þjappaða fyllingu og er þá hver veggeining reist á þar til gerða ásetusteina. Þegar sökklunum hefur verið komið fyrir allan hringinn eru þeir soðnir saman og jarðskaut tengt. Þá er steyptur undir sökkulinn fótur, stærð eftir þörfum. Með þessu er tryggt að full áseta á fyllingu næst. Þessu næst eru einingarnar steyptar saman. Ísteypt tengijárn eru siðan beygð inn í plötu þegar þar að kemur. Miðað er við að sökklarnir séu einangraðir að utan með steinullargrunnplötum upp að útveggjeiningum sem reistar eru ofan á sökklana. Með þessu er tryggt að engin kuldabrú myndast.

|
 |
|