HÚSEININGAR

Loftorka hefur steypt húseiningar í meira en fjórðung aldar.

Í dag hefur fyrirtækið eigin hönnunardeild, er sinnir ráðgjöf við viðskiptavini og  getur tekið að sér, ef þess er óskað, að hanna burðarþol, vatns- og hitalagnir, en gert er ráð fyrir því að verkkaupi leggi til raflagnateikningar.
Fyrirtækið leggur metnað í það að skila vandaðri vöru. Gæðaeftirlit, vottað af Nýsköpunarmiðstöð Íslands, er í þessu skyni rekið í verksmiðjum Loftorku, en þær eru í Borgarnesi og á Akureyri.

 

Loftorka framleiðir sérhannaðar einingar og eru möguleikarnir óteljandi. Tiltölulega fáar grunngerðir staðlaðra eininga nægja þó við flestar húsbyggingar.

 



 

 

 

 

 

 

 

 

 

ÚTVEGGIR

Útveggjaeining getur verið óeinangruð, járnbent steypt eining, sem þá er gert ráð fyrir að verði einangruð síðar og klædd með veðurkápu. 
Einnig er algengt að nota einangraða útveggjaeiningu eða svonefnda „samloku“.