SÉRFRAMLEIÐSLA

Einingaframleiðsla Loftorku er mjög fjölbreytt og ekki einungis bundin við framleiðslu húseininga og röra. Möguleikarnir eru miklir og sem dæmi má nefna forsteypta hluti á borð við skorsteina, reykháfa, undirgöng o.fl.

 

 

 

BITAR

Forspennir bitar eru framleiddir eftir sérpöntunum og eru ekki framleiddir á lager hjá fyrirtækinu enda eru möguleikarnir miklir hvað varðar form og gerð.
Verðið er mjög breytilegt, allt eftir því hvernig hönnun er háttað. Verðið er þó fyllilega samkeppnisfært miðað við staðsteypta bita. Tímasparnaður getur verið umtalsverður.

 

REYKHÁFAR

Við framleiðum reykháfa þar sem reykröri úr vikursteini er komið fyrir.
Lengd og úrtök að neðan eru að ósk hvers og eins og auðvelt er að aðlaga þessa framleiðslu mismunandi aðstæðum. Utanmál reykháfsins er
60x60cm.

 

SÚLUR

Forsteyptar súlur eru álitlegur kostur þar sem auðvelt er að koma þeim fyrir. Súlurnar þarf að hanna eins og bitana í hverju tilfelli og eru því notkunarmöguleikarnir miklir.

 

STAGFESTUR

Loftorka hefur um árabil framleitt margar tegundir af stagfestum og undirstöðum allt frá litlum hellum og upp í mjög stórar stagfestur og undirstöður fyrir háspennumöstur.

 

RÆSISENDAR

Ræsisendar fyrir vegagerð er vaxandi framleiðsla hjá fyrirtækinu og eru fyrirliggjandi allar algengustu stærðir.

 

SPENNISTÖÐVAR

Spennistöðvar hafa verið framleiddar fyrir rafmagnsveitur í töluverðu mæli á undanförnum árum. Sumar eru með heilsteyptum botnum, þannig er hægt að koma í veg fyrir að mengandi efni fari út í umhverfið og spilli náttúrunni, verði óhapp á því sviði.

 

UNDIRGÖNG

Loftorka hefur gert fjölda undirganga fyrir verktaka í vegagerð og sveitarfélög. 
Sjaldnast er um staðlaða framleiðslu að ræða en framleitt er eftir teikningum hverju sinni enda aðstæður mjög mismunandi á hverjum stað.

 

TANKAR

Fyrir landbúnaðinn hafa verið framleiddir haughústankar. Þessi tankar geta verið af ýmsum stærðum.

T.d hafa verið framleiddir tankar sem eru 2300 rúmmetrar að stærð og eru úr rifjuðum vegg- og lofteiningum. 

Þvermál þeirra var 23.1 m og hæð 6.0 m. Þessir tankar eu boltaðir saman og auk þess spenntir saman, að hluta til með stálvírum. Einnig henta þeir vel sem þrær fyrir sjávarútveginn.