STOÐVEGGIR

Möguleikar eru miklir hvað varðar framleiðslu forsteyptra stoðveggja. Oftast er staðbundið hvernig stoðveggir eru útfærðir. Hönnun er þá viðhöfð með svipuðum hætti og þegar staðsteypt er og því enginn eðlismunur á þeirri vinnu.

 

Tveir aðal útfærslumöguleikar eru, hvað varðar stoðveggi:

 

Annars vegar veggur með fæti sem er settur beint á fyllingu og raðað upp án sérstakrar undirsteypu. Afrétting fer því fram á fyllingunni. Mörg dæmi eru um þetta í vegaundirgöngum sem Loftorka Borgarnesi ehf. 
hefur steypt.

 

Hins vegar veggur án fótar. Einingarnar eru þá reistar á ásetuklossa og fóturinn steyptur á staðnum. Járnagrind og tenging við fót er einföld og þessi aðferð er einfaldari í reisingu en þá er að sjálfsögðu eftir vinnan við staðsteypuna.

 

Verð á þessum stoðveggjum er mjög breytilegt allt eftir því hvernig hönnun eininganna er útfærð en tímasparnaðurinn er hins vegar mikill. 
Þegar göng eru gerð undir vegi er þess oft krafist að þessir byggingahlutir séu forsteyptir til að spara tíma.


STOÐVEGGIR MEÐ STEINAMYNSTRI

Stoðveggur með steinamynstri er kjörinn til að  nota þar sem leiðrétta þarf hæðarmismun.
Steinninn er 1 x 1 x 3 (m) og um 7,5 tonn.
Einnig er hægt að fá helmingi þynnri stein og hornsteina.

 

SORPTUNNUSKÝLI

Sorptunnur þarf í auknu mæli að geyma í sérstökum sorptunnuskýlum.

Loftorka framleiðir forsteypt sorptunnuskýli með bogadregnu þaki.
Skýlin henta bæði nýjum sem og eldri húsum.
Sorptunnuskýlið er 150 x 90 x 166 cm og vegur 1310 kg.