Á undanförnum árum hefur Loftorka tekið stakkaskiptum, alhliða verktakafyrirtæki hefur orðið að öflugu þjónustufyrirtæki á sviði byggingariðnaðar og einingaframleiðslu úr steinsteypu.

 

Með heimasíðunni er ætlunin að bæta enn aðgengi viðskiptavina hvort sem um er að ræða einstaklinga sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið, hönnuði að leita tæknilegra upplýsinga eða stærri verktaka sem leita tilboða í forsteyptar einingar sem nægðu til að þekja fjölda knattspyrnuvalla.

 

Með sérhæfðri verkþekkingu og áralangri reynslu starfsmanna, þar sem unnið er eftir stífum gæðastöðlum, hefur Loftorka komist í þá stöðu að vera mest vélvædda einingaverksmiðja landsins og í fararbroddi á markaði fyrir forsteyptar einingar og rör.

Krafa viðskiptavina um gæðaframleiðslu og afkastagetu hefur stutt við bakið á fyrirtækinu í uppbyggingu þess og tryggt að viðskiptavinum, stórum sem smáum, býðst ávallt góð þjónusta og topp gæði á sanngjörnu verði.

 

Með því að velja ávallt besta fáanlega hráefni í framleiðslu sína og þrotlausri áherslu á gæðamál og vöruþróun leitast Loftorka við að halda forskoti sínu á markaði fyrir forsteyptar einingar, fyrirtækinu, starfsmönnum og viðskiptavinum til hagsbóta.

 

Það er von mín að hér eftir verði viðskiptavinum Loftorku auðveldara að nálgast allar þær upplýsingar sem þörf er á í tengslum við “þak yfir höfuðið” í víðustu skilgreiningu þess hugtaks.

 

Óli Jón Gunnarsson
framkvæmdastjóri