Skilmálar LOB ehf.
1. Almennt
1.1. Skilmálar þessir og fyrirvarar gilda um öll verk LOB ehf. nema um annað sé samið. Unnið er eftir ÍST 30 staðlinum þar sem það á við en einstakir samningar, skilmálar og fyrirvarar ganga honum framar.
2. Tilboð
2.1. Við tilboðsgerð er miðað við deililausnir Loftorku.
2.2. Verð uppgefin í tilboði og/eða verksamningi eru án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram.
2.3. Loftorka er bundin af tilboði sínu í 30 daga frá dagsetningu þess.
2.4. Hafni verkkaupi tilboði eða taki tilboði annars bjóðanda er tilboð Loftorku ekki bindandi lengur.
2.5. Sé gert nýtt tilboð af hálfu Loftorku áður en fyrri tilboðsfrestur er liðinn fellur fyrra tilboð úr gildi.
2.6. Verkkaupi skal tilkynna Loftorku í bréfi, símskeyti eða vefpósti samþykki hann tilboð. Með tilboði og samþykki þess er kominn á bindandi samningur sem nánar skal útfærður í verksamningi.
3. Verksamningur
3.1. Óski samningsaðilar eftir því að breytingar verði gerðar á verki skal það gert skriflega og endurskoða aðilar þá samningsupphæð í samræmi við breytingar.
3.2. Magn miðast við endanlegar teikningar eða þær upplýsingar sem liggja fyrir frá verkkaupa. Verði magnbreytingar gilda einingaverð í verksamningi og breytist samningsupphæð í samræmi við það.
3.3. Magn eininga miðast við ystu mál veggja og platna. Glugga- og hurðagöt eða önnur op eru ekki dregin frá. Undantekning frá þessu eru endagaflar (stafnar), en þar er reiknað heildarflatarmál stafnsins án þess þó að göt séu dregin frá.
3.4. Framleiðsla miðast við teikningar hönnuða enda hafi þeir kynnt sér deililausnir LOB ehf.
3.5. Allar teikningar sem verkkaupi útvegar ber hann kostnað af og ábyrgð á.
3.6. Teikningar skulu afhentar undirritaðar af hönnuði og á AutoCAD formi.
3.7. Verkkaupi ber ábyrgð á því að teikningar hafi verið yfirfarnar af samræmingarhönnuði.
3.8. Samkvæmt 47. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, ber samræmingarhönnuður ábyrgð gagnvart byggingaryfirvöldum, á að séruppdrættir,sem lagðir eru fram til samþykktar, séu í samræmi innbyrðis og við aðaluppdrætti. Samræmingarhönnuður er sá sem áritar aðaluppdrátt hverju sinni.
3.9. Teikningar skulu yfirfarnar af verkkaupa og skal hann samþykkja þær fyrir framleiðslu. Hafi verkkaupi athugasemdir við teikningar skulu þær gerðar í tæka tíð fyrir framleiðslu, sbr. 3.10.
3.10. Verði breytingar á teikningum skal senda þær merktar með breytingarskýi og breytingarbókstaf ásamt dagsetningum í ramma.
3.11. Miðað er við að teikningar undirritaðar af hönnuði berist að minnsta kosti sjö vikum fyrir upphafsdag framleiðslu, ef ekki áskilur Loftorka sér rétt til að endurskoða afhendingaráætlun. Verði breytingar á teikningum eftir þann tíma ber Loftorka ekki ábyrgð á seinkun afhendingar sem af því leiðir.
3.12. Loftorka er með samning við Nýsköpunarmiðstöð íslands (áður RB) um eftirlit með steinsteyptum einingum, steinsteypuframleiðslu og röraframleiðslu fyrirtækisins..
3.13. Loftorka gengur ekki frá einingasamskeytum nema um það sé sérstaklega samið.
3.14. Loftorka kíttar ekki með gluggum nema um það sé sérstaklega samið.
3.15. Frágangur við glugga skal vera í samræmi við deililausnir Loftorku nema um annað sé sérstaklega samið.
3.16. Skemmdir á vörunni sem rekja má til rangrar meðferðar hennar eftir að verkkaupi hefur tekið við henni er á hans ábyrgð.
3.17. Tefji verkföll, verkbönn eða aðrar ófyrirsjáanlegar orsakir, það að aðilar geti staðið við dagsetningar samkvæmt fyrirkomulagi, breytast tímamörk áætlana sem þeim töfum nemur án þess að til bóta komi úr hendi aðila.
3.18. Verkkaupi sér til þess að vatn, hiti og rafmagn séu til staðar á byggingarstað.
3.19. Verkkaupi skapar nauðsynlega aðstöðu á byggingarstað fyrir reisingarflokk, þ.e. vinnuskúr með hreinlætisaðstöðu.
4. Afhending
4.1. Samið skal um afhendingarstað.
4.2. Ef samið er um að Loftorka afhendi framleiðslueiningar á byggingarstað hjá verkkaupa telst afhending hafa farið fram þegar flutningabifreið Loftorku hefur komið á afhendingarstað og bílstjóri hefur tilkynnt að losun megi fara fram.
4.3. Ef samið er um afhendingu við verksmiðjudyr Loftorku skal samið sérstaklega um flutning framleiðslueininga á byggingarstað.
4.4. Verkkaupi ber ábyrgð á og annast losun flutningabifreiða sem flytja framleiðslueiningar á byggingarstað.
4.5. Ef losun vagna er ekki lokið innan 2 klukkustunda frá afhendingu á byggingarstað er Loftorku heimilt að reikningsfæra kostnað upp á allt að 15.000 kr. fyrir hverja klukkustund.
4.6. Gert er ráð fyrir því að fleti fái að standa á verkstað í sólarhring, óski verkkaupi eftir því að halda fletum lengur skal hann greiða leigugjald að upphæð 1.500 kr. á dag.
4.7. Verkkaupi skal tilkynna losun á fletum til Loftorku, sem annast um að flytja þau burtu.
4.8. Í þeim verkum sem Loftorka annast reisingu einingu eiga liðir 4.4, 4.5, 4.6 og 4.7 ekki við, nema rekja megi tafir til verkkaupa.
5. Greiðslur og reikningsskil
5.1. Við undirskrift samnings skal verkkaupi greiða 10% af samningsupphæð.
5.2. Reikningar verða gerðir hálfsmánaðarlega eftir framvindu verksins. Miðað er við að 95% hafi verið reikningsfærð þegar framleiðslu er lokið í verksmiðju og 5% þegar afhending hefur farið fram.
5.3. Verkkaupi skal leggja fram tryggingu sem Loftorka tekur gilda fyrir því að verkkaupi standi við greiðslur. Verði vanefndir á greiðslum getur Loftorka innleyst tryggingu án fyrirvara í samræmi við tryggingarskjal.
5.4. Samningsupphæð er bundin byggingarvísitölu tilboðsdags og skal sú vísitala vera grunnvísitala verksamnings. Aldrei skal miða við lægri vísitölu en grunnvísitölu samningsins. Við útgáfu áfangareikninga skal miða við breytingar sem orðið hafa á vísitölu frá grunnvísitölu verksamnings.
5.5. Tekið er tillit til magnbreytinga sem eiga sér stað strax í næsta verkstöðureikningi eftir að breytingin á sér stað.
5.6. Reikningar skulu greiðast innan 15 daga frá útgáfudegi. Eftir það reiknast dráttarvextir í samræmi við auglýsingar Seðlabanka Íslands.
5.7. Allur kostnaður við innheimtu fellur á verkkaupa.
5.8. Verkkaupi greiðir allan fjármagnskostnað, þar með talið lántökugjald, stimpilgjöld og afföll af skuldabréfum verði þau notuð í viðskiptunum.
5.9. Verkkaupi greiðir öll gjöld vegna bygginga til ríkis og sveitarfélags, ef einhver eru.
5.10. Varðandi endurgreiðslu á virðisaukaskatti er vísað til reglugerðar 439/2009 um breytingu á reglugerð nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði, þar sem fram kemur að framleiðendur sjái sjálfir um að innheimta endurgreiðslu virðisaukaskattsins.
6. Verk og framleiðsluvörur teljast eign LOB ehf. þar til verkkaupi hefur greitt fyrir.
7. Rísi mál vegna skilmála þessara eða verksamnings milli aðila, skal reka það fyrir Héraðsdómi Vesturlands.