SÖGUÁGRIP


Loftorka sf. var stofnað 16. apríl 1962. Stofnendur þess voru Konráð Andrésson og Sigurður Sigurðsson. Fyrsta tækið sem fyrirtækið eignaðist var loftpressubíll og er nafn þess dregið af því. Árið 1969 hefst rörasteypa og hellugerð í leiguhúsnæði í Borgarnesi og var rekstri félagsins þá skipt í tvo hluta, annan í Reykjavík og hinn í Borgarnesi. 

Árið 1974 var röra- og hellusteypan flutt í nýtt húsnæði við Engjaás í Borgarnesi og bættist þá við steypustöð, steypubílar og viðgerðarverkstæði.


Þegar félagið hóf framleiðslu á húseiningum, árið 1981, urðu kaflaskil í stærð fyrirtækisins.  Það sama ár var byggt nýtt húsnæði undir þessa framleiðslu og ný og fullkominn steypustöð var keypt til að sinna henni.  Fljótlega varð húseiningaframleiðslan stærsti þátturinn í rekstri. Við lok níunda áratugarins var meðal starfsmannafjöldi 35-40.
Þá var tekið upp það megin markmið að framleiða og selja steinsteypu í föstu formi með hágæði að leiðarljósi.

 

Í framhaldi að þessari ákvörðun var einblínt á að finna sóknarfæri innan þessa markaðshluta. Er þeirri vinnu lauk, auk þess að geysileg verkefnaaukning átti sér stað seinni hluta árs 1996, var ráðist í nýbyggingu fyrir rörasteypu félagsins, keyptar voru nýjar vélar til framleiðslu á steinrörum með innsteyptum þéttihringjum.  Vegna þessara breytinga var steypustöðvunum fjölgað um helming en þær eru alsjálfvirkar til að þjóna röra- og einingaframleiðslu samhliða almennri steypusölu.


Árið 2002 var meðal starfsmannafjöldi fyrirtækisins um 70 stöðugildi. Í upphafi ársins 2005 hafði starfsmönnum fjölgað mikið og voru þá 130 manns. Árið 2004 keypti Loftorka Borgarnesi ehf. Forsteypuna ehf. á Kjalarnesi. við það jókst framleiðslugeta í einingaframleiðslu um 25% hjá fyrirtækinu.

 

 

 

 

 

 

 

 Árið 2005 var viðburðaríkt í sögu félagsins en í byrjun árs keypti Loftorka svokallað "Mjólkursamlagshús" við Engjaás, handan Ólafsvíkurvegar sem er um 4200 m².  Strax var hafist handa við að gera framleiðslusal kláran og í maímánuði hófst framleiðsla á kúluplötum í nýju framleiðslurými.  Þetta markaði upphaf framleiðslu á kúluplötum á Íslandi.
Í September 2005 voru aðalskrifstofur félagsins fluttar að Engjaási 1, í Engjaáshúsið.


Í desember var byggð ný steypustöð í Borgarnesi, svokölluð turnstöð. Steypustöðin sem kemur frá Ítalíu og er turnstöð með tveimur tveggja og hálfs rúmmetra blöndurum og hægt er að framleiða í stöðinni um 180 rúmmetra af steypu á klukkustund.    Í turninum eru sex sementssíló og sex malarsíló.  Stöðin er mjög fullkomin og ein stærsta steypustöð landsins.


Á árinu 2006 hélt uppbygging áfram og í marsmánuði var gengið frá kaupum á nærri 5.000 fermetra húsi af Slippinum á Akureyri.  Þar er nú einingaverksmiðja og steypustöð.   Með starfseminni fyrir norðan er Loftorka að koma til móts við óskir verktaka á Norðurlandi sem vilja byggja með forsteyptum einingum.  Í júlí sama ár voru fyrstu einingarnar sem framleiddar voru fyrir norðan afhentar.  Sama ár var byrjað að selja steypu úr steypustöðinni.


Í maí 2006 hófst framleiðsla í nýrri einingaverksmiðju í Borgarnesi þegar fyrsta einingin var steypt.  Verksmiðjan er 3000 m² að stærð og búin fullkomnum framleiðslubúnaði.  Megin framleiðslulínan er svo kallað hringekjukerfi en steypuborðin er á brautum fara sjálfkrafa á milli starfsstöðva.   Í október sama ár var tekin í notkun litasteypustöð fyrir áferðarsteypu.


Í dag starfa um 50 manns hjá Loftorku eftir miklar vendingar í tengslum við efnahagshrunið haustið 2008.