|

VERKASKIPTING
Oft er verkaskipting þannig að verkkaupi útvegar aðalteikningar hússins, þ. e. samþykktar teikningar arkitekts, ásamt teikningum af raflögnum, en Loftorka útvegar aðrar teikningar, þ. e. burðarþols- og lagnateikningar.
Loftorka framleiðir einingar, flytur þær og afhendir á byggingarstað. Loftorka getur einnig annast reisingu, ef þess er óskað. Ekkert er því til fyrirstöðu þó að kaupendur forsteyptra eininga sjái sjálfir um að reisa einingarnar og geta þeir þá fengið leiðbeiningar hjá Loftorku um aðferðirnar.
Nánar er kveðið á um verkaskiptingu í verksamningi. |